Fotbolti.net
22.05.26 - 09:19
Elvar Geir Magnússon

Slot neitar að svara því hvort Salah verði með

Eldfimt samband.

Eldfimt samband.

Canon

Mynd: EPA

Arne Slot stjóri Arsenal neitar að svara því hvort Mohamed Salah verði með Liverpool á sunnudag, í leik sem yrði síðasti leikur Egyptans fyrir félagið.

Salah hefur gagnrýnt leikaðferð Slot en hann mun yfirgefa Liverpool í sumar eftir níu ár á Anfield.
„Myndi ekki hleypa Salah nálægt leikvangnum“
TENGT EFNI

„Myndi ekki hleypa Salah nálægt leikvangnum“

Liverpool mætir Brentford á sunnudag og þar eitt stig til að vera öruggt með Meistaradeildarsæti.

Fyrr á tímabilinu var hinn 33 ára Salah skilinn eftir utan hóps í Meistaradeildarleik gegn Inter eftir að hafa sagt í viðtali að samband sitt og Slot væri ekki gott.

Slot var á fréttamannafundi spurður út í gagnrýni Salah á leikaferð Liverpool.

„Mér finnst ekki skipta miklu máli hvað mér finnst um ummæli hans. Það sem er mikilvægt er að við tryggjum okkur Meistaradeildarsætið á sunnudaginn. Ég og Salah viljum félaginu það besta, við viljum að það nái árangri og það er aðalmarkmiðið," segir Slot.

„Ég verð að finna leið til að þróa þetta lið núna og fá það til að spila fótbolta sem mér líkar. Og ef mér líkar það þá munu aðdáendurnir líka vera ánægðir því ég hef oft ekki verið hrifinn af því hvernig við höfum spilað á þessu tímabili."

Annars kom það fram á fréttamannafundinum að markvörðurinn Alisson Becker og sóknarmaðurinn Alexander Isak verði báðir með á æfingu í dag og útlit fyrir að þeir verði leikfærir á sunnudag.
Slot neitar að svara því hvort Salah verði með
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.