Fotbolti.net
22.05.26 - 23:34
Kári Snorrason
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl

Auglýsing
Anton fær innilegt faðmlag frá Ágústi Orra eftir mark sitt.

Anton fær innilegt faðmlag frá Ágústi Orra eftir mark sitt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik varð fyrsta liðið til að leggja KR að velli í Bestu deildinni þetta árið er liðið vann 6-3 stórsigur á KR.

Anton Logi Lúðvíksson skoraði og lagði upp tvö mörk í kvöld og hefur verið valinn Sterkasti leikmaður umferðarinnar. Fótbolti.net ræddi við Anton að leik loknum.
Lestu um leikinn: Breiðablik 6 - 3 KR
„Mér fannst við eiginlega vera betri frá fyrstu mínútu. Byrjum auðvitað frábærlega. Síðan fáum við högg á okkur, þeir minnka muninn í 2-1 og KR-ingunum er eiginlega alveg sama, þeir geta alltaf skorað tvö, þrjú mörk. Maður þarf að bera virðingu fyrir því,“ sagði Anton.

„Við náum að svara um hæl þegar þeir minnka muninn. Ég held að það að leyfa þeim ekki að ná mómentuminu í leiknum hafi gert útslagið í dag.“


Anton segir liðið hafa refsað KR-ingum fyrir mistök sín: „Við vorum að finna svæðin utan á Gabríel og Akoto. Svo að Dóri gæti ekki komist upp að hreinsa þetta. Við refsuðum þeim eiginlega út um allan völl. Líka neðarlega á vellinum, við vorum þéttir og þeir voru ekki að finna taktinn á miðjunni,“ sagði Anton að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Sterkustu leikmenn:
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.