Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 22. júní 2021 18:40
Brynjar Ingi Erluson
Foden ekki í hópnum - „Vildi ekki taka áhættuna"
Phil Foden
Phil Foden
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden er ekki í leikmannahópnum hjá Englandi gegn Tékklandi á Evrópumótinu í kvöld en hann er á gulu spjaldi og vildi Gareth Southgate því ekki taka neina sénsa.

England verður án Mason Mount og Ben Chilwell næstu daga þar sem þeir þurfa að vera í sóttkví í sjö daga. Southgate neyddist því til að gera breytingar á liðinu.

Foden er á gulu spjaldi og er því ekki í hópnum en Southgate vill hafa hann kláran í 16-liða úrslitum mótsins.

„Hann er á gulu spjaldi og þar sem við erum án tveggja leikmanna í næstu umferð þá vildum við ekki taka áhættuna á að missa þriðja leikmanninn," sagði Southgate við ITV.

„Þetta er sjaldgæft á svona móti. Það eru þó verðlaun í boði því við viljum vera áfram á Wembley og það er frábært tækifæri fyrir fólkið. Þetta er frábært kvöld fyrir sóknarmennina til að tjá sig á vellinum," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner