Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. júní 2022 15:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þarf ekki að segja neitt til að vera fyndin - „Þurfa allir að hafa eina Cessu í sínu liði"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á Vísi eins og á öðrum miðlum er hitað upp fyrir EM. Reglulega birtast greinar þar sem leikmenn kvennalandsliðsins svara nokkrum spurningum.

Leikmenn eru t.d. spurðir út í hver í hópnum sé fyndnust.

Svarið 'Cessa' hefur oft komið fyrir en Cecilía Rán Rúnarsdóttir, einn af markvörðum liðsins, þykir greinilega fyndin.

Glódís Perla Viggósdóttir er liðsfélagi Cecilíu hjá Bayern Munchen. Glódís var til viðtals í dag og var spurð út í Cecilíu.

„Það er ótrúlega gaman, við náum vel saman og það er þægilegt að geta talað íslensku og svona. Það er bara frábært."

Sagði Glódís aðspurð hvernig það væri með tvo Íslendinga með sér í liði Bayern. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er líka leikmaður Bayern.

Ertu sammála því að Cecilía sé fyndnust í landsliðinu?

„Já, ekki spurning," sagði Glódís og hló. „Hún er mjög steikt og það þurfa allir að hafa eina Cessu í sínu liði."

Er hún að lauma inn bröndurum eða er hún bara náttúrulega fyndin? „Hún er eiginlega bara náttúrulega fyndin. Hún þarf ekki einu sinni að segja neitt, það er bara hvernig hún er," sagði Glódís og hló.

Myndirnar tók Halfiði Breiðfjörð á landsliðsæfingum í vikunni.
Glódís Perla: Megum ekki fara aftur í gamla pakkann
Athugasemdir
banner
banner
banner