Best í Mjólkurbikarnum: Mesti sumarfílingurinn hingað til
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net

Mynd: Fótbolti.net

Agla María Albertsdóttir, leikmaður Breiðabliks, hefur verið valin besti leikmaður 8-liða úrslitanna í Mjólkurbikar kvenna. Agla María átti frábæran leik gegn Þrótti þar sem Breiðablik tryggði sér sæti í undanúrslitin.
Hún skoraði öll þrjú mörkin í Laugardalnum, komu þau öll í fyrri hálfleiknum og sigurinn aldrei í hættu hjá Blikum. Fyrsta markið var skot fyrir utan teig í samskeytin, í öðru markinu var Agla María ein á fjærstönginni þegar fyrirgjöf rataði á hana og í þriðja markinu þrumaði boltanum upp í samskeytin nær.

Agla María er 23 ára og spilar oftast á vinstri kantinum hjá Breiðabliki. Hún gekk aftur í raðir Breiðabliks í vetur eftir að hafa verið á láni hjá félaginu seinni hluta síðasta tímabils frá Häcken í Svíþjóð.
Hún hefur einnig leikið með Val og Stjörnunni á sínum ferli og hefur verið í A-landsliðinu frá árinu 2017.
Hún kom í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og tók á móti kassa af Hleðslu í verðlaun fyrir að vera besti leikmaður 8-liða úrslitanna. Í viðtalinu ræðir Agla María um tímabilið til þessa, úrslitakeppnina og leikinn gegn Stjörnunni í undanúrslitiunum. Sá leikur fer fram 1. júlí.
Bestar í bikarnum:
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan) eftir 16-liða úrslit