Fotbolti.net
Frá Pétri til Söru Bjarkar: Hvaða heimkoma er stærst?

22.06.26

Frá Pétri til Söru Bjarkar: Hvaða heimkoma er stærst?

EFTIR GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Stórir prófílar sem snúa heim hafa lengi verið meðal stærstu tíðinda íslenska fótboltans. Sumir koma aftur til að lyfta uppeldisfélaginu sínu á erfiðum tímum, aðrir snúa heim þegar uppeldisfélagið er að berjast á toppnum og enn aðrir velja aðra leið með því að semja við annað lið en það sem þeir ólust upp hjá.

Á undanförnum árum hafa heimkomur orðið sífellt stærri fréttir. Fjárhagsleg staða stærstu félaga landsins hefur styrkst, umgjörðin batnað og íslensk lið hafa í auknum mæli getað laðað til sín leikmenn með glæsilega ferilskrá eftir langan atvinnumannaferil erlendis. Þegar slíkir leikmenn snúa heim skapast ekki aðeins væntingar um árangur inni á vellinum heldur geta þeir einnig haft áhrif á áhuga almennings, áhorfendatölur og ímynd félaganna.

Í þessari samantekt eru stærstu heimkomur íslenska fótboltans flokkaðar og að lokum vaknar svo stóra spurningin: Hvaða heimkoma var sú stærsta í sögu íslenska fótboltans?

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.