Fotbolti.net
22.06.26 - 10:30
Ívar Björgvinsson

Ein besta frammistaða í sögu landsliðsins

Ein besta frammistaða í sögu landsliðsins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á meðan HM í Norður-Ameríku stendur yfir verður okkur Íslendingum oft hugsað til okkar þátttöku á HM 2018 þar sem við vorum þá fámennasta þjóð heims til þess að taka þátt. Curacao sló það mét nú af okkur og voru einnig að sækja sitt fyrsta HM stig á dögunum með markalausu jafntefli gegn Ekvador. Engu að síður var einu mesta afreki í íslenskri íþróttasögu náð þegar strákarnir okkar tryggðu okkur þátttökurétt á HM í Rússlandi. Við rifjum upp eina bestu frammistöðu landsliðsins sem fór langleiðina með að tryggja sæti beint á HM 2018.

Ísland var búið að sækja 16 stig í átta leikjum í undanriðlinum og átti eftir tvo leiki. Króatía var einnig með 16 stig en betri markatölu, Tyrkland og Úkraína fylgsu svo fast á hæla okkar með 14 stig. Níundi og næstsíðasti leikur Íslands var útileikur gegn Tyrklandi, einn erfiðasti útivöllur í Evrópu að heimsækja. Tyrkir eru þekktir fyrir gífurlega mikla stemningu á leikjum sínum og mikinn hávaða sem myndast. Íslensku stuðningsmennirnir voru um 200 gegn um 40.000 Tyrkjum og ljóst var að verkefnið yrði erfitt. 

Strákarnir okkar mættu ansi vel gíraðir til leiks og voru mjög sannfærandi í öllum aðgerðum en eftir um hálftíma leik kom Jóhann Berg okkur yfir eftir frábæran undirbúning Jóns Daða af vinstri kantinum. Sjö mínútum síðar var Jón Daði aftur á ferðinni með aðra stórkostlega stoðsendingu en hann vann einvígi á miðjum vellinum, fékk boltann síðan aftur með tvo menn í sér og klobbaði einn og kom boltanum inn fyrir á Birki Bjarnason sem kom Íslandi í 0-2.

Það var síðan í byrjun síðari hálfleiks sem fast leikatriði beint af æfingasvæðinu skilaði þriðja marki Íslands en það mark kom eftir hornspyrnu. En það sem var enn betra við þetta kvöld var það að á 90. mínútu leiks Króatíu og Finnlands jafnaði Pyry Soiri metin fyrir Finnland. Leikurinn endaði 1-1 og þýddi það að Ísland var komið í bílsstjórasætið um sæti á HM og aðeins einn leikur eftir. Ísland var með 19 stig en Króatía og Úkraína með 17 stig. 

Frábær leikur hjá þessum tveimur gegn Tyrkjum.

Frábær leikur hjá þessum tveimur gegn Tyrkjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þriðja markið kom beint af æfingasvæðinu.

Þriðja markið kom beint af æfingasvæðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.