Fotbolti.net
22.06.26 - 09:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Egill Orri spilaði með aðalliði Midtjylland

Egill Orri spilaði með aðalliði Midtjylland
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

U19 landsliðsmaðurinn Egill Orri Arnarsson lék seinni hálfleikinn þegar dönsku bikarmeistararnir í Midtjylland sigruðu norska liðið Lilleström í æfingaleik á laugardag. Þetta var hans fyrsti leikur fyrir aðallið félagsins. Eina mark leiksins kom í seinni hálfleiknum.

Egill er fæddur árið 2008 og hefur verið lykilmaður í því landsliði síðustu árin. Hann er hávaxinn vinstri bakvörður sem Midtjylland keypti af Þór vorið 2024.

Midtjylland er að undirbúa sig fyrir Evrópuleiki í júlí en liðið endaði í 2. sæti dönsku deildarinnar á liðnu tímabili.
Fleiri Íslendingar eru hjá liðinu, landsliðsmaðurinn Elías Rafn Ólafsson er aðalmarkvörður liðsins og þeir Sigurður Jökull Ingvason og Alexander Máni Guðjónsson hafa verið með Agli í U19 liðinu.

Egill á að baki 38 leiki fyrri yngri landsliðin og hefur í þeim skorað tvö mörk. Hann lagði upp jöfnunarmarkið í jafntefli U19 gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM fyrr í þessum mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.