Fotbolti.net
22.06.26 - 12:32
Elvar Geir Magnússon

L’Équipe biður Doku afsökunar - Eiður Smári segir að ekki þurfi að ræða þetta

Jeremy Doku ætlar að vera viðstaddur fæðingu síns fyrsta barns.

Jeremy Doku ætlar að vera viðstaddur fæðingu síns fyrsta barns.

Canon

Mynd: EPA

Franski fjölmiðillinn L’Équipe hefur beðist afsökunar á ummælum fréttakonunnar France Pierron sem gagnrýndi belgíska landsliðsmanninn Jeremy Doku fyrir að vilja yfirgefa HM til að vera viðstaddur fæðingu síns fyrsta barns.

L’Équipe sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi og segir að ummæli Pierron endurspegli á engan hátt það sem miðillinn standi fyrir.
Doku yfirgefur mögulega herbúðir Belga - Harðlega gagnrýndur
TENGT EFNI

Doku yfirgefur mögulega herbúðir Belga - Harðlega gagnrýndur

„HM færir manni mikla hamingju. Það eru hundruðir fótboltamanna sem myndu drepa fyrir að vera í þínum sporum. Þetta gæti aldrei gerst aftur. Þetta er æskudraumur, þú vilt samt ganga í burtu frá öllu til að vera viðstaddur fæðingu barnsins þíns, ógeðslegt, afsakið orðbragðið, þar sem pabbinn er algjörlega tilgangslaus," sagði Pierron en hún baðst síðan sjálf afsökunar á ummælum sínum.

Shireen, eiginkona Doku, á að fæða son í heiminn snemma í júlí en þá vonast Belgía til að vera í útsláttarkeppni HM. Doku, sem er leikmaður Manchester City, vill ekki missa af því þegar barnið kemur í heiminn og hyggst yfirgefa herbúðir Belga til að upplifa þessa stund.

Eftir gagnrýni Pierron hefur Doku fengið stuðning úr öllum áttum og frá ýmsum aðilum innan fótboltaheimsins. Málið var meðal annars rætt í HM stofunni á RÚV í gær.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.