Fotbolti.net
22.06.26 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hvaða skór standa upp úr á HM 2026?

Bleiku skórnir hafa vakið mikla athygli.

Bleiku skórnir hafa vakið mikla athygli.

Canon

Mynd: EPA

Það er erfitt að horfa á heimsmeistaramótið sem núna fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó án þess að taka eftir skóm leikmanna. Á fótum flestra leikmannanna skína nefnilega skærbleikir takkskór.

Á stórmótum á borð við HM er hvert smáatriði vandlega úthugsað. Búningar, hárgreiðslur og fagnaðarlæti vekja athygli, en fátt er jafn sýnilegt og skórnir sjálfir. Þeir eru orðnir hluti af ímynd leikmanna, markaðssetningu framleiðenda og menningu fótboltans.
Þrátt fyrir fjölbreytt framboð eru það enn sömu risarnir sem stjórna markaðnum.

„Það eru þessi þrjú stóru merki, Puma, Adidas og Nike, og þetta eru vinsælustu týpurnar: Puma Future, Adidas F50 Hyperfast og Nike Mercurial Vapor,“ segir Benedikt Almar Bjarkason, eigandi Boltamannsins við Fótbolta.net.

Þessi þrjú merki hafa í áratugi keppt um hylli stærstu stjarnanna og yngstu iðkendanna. Hvert þeirra hefur byggt upp sterka ímynd í kringum ákveðnar skógerðir sem tengjast hraða, nákvæmni eða sköpunargáfu á vellinum.

Að mati Benedikts hefur samkeppnin þó einnig sínar aukaverkanir.

„Allir eru flottir en þar sem skórnir frá framleiðendum eru í sama lit, þá blandast þeir dálítið á skjánum. Puma brýtur þetta aðeins upp með tvískiptum litum á vinstri og hægri skónum. En ef ég þyrfti að velja einn skó sem stendur upp úr á mótinu þá verð ég að segja Adidas F50 Hyperfast."

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 20. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Hvað er málið með bleiku skóna á HM?
TENGT EFNI

Hvað er málið með bleiku skóna á HM?

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Adidas F50 Hyperfast.

Adidas F50 Hyperfast.

Canon

Mynd: Boltamaðurinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.