Fotbolti.net
22.07.16 - 19:30
Arnar Daði Arnarsson

Kristbjörg nýr aðstoðarþjálfari hjá Fylki (Staðfest)

Kristbjörg (t.v) ásamt Rögnu Lóu fyrrum þjálfara Fylkis.

Kristbjörg (t.v) ásamt Rögnu Lóu fyrrum þjálfara Fylkis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Kristbjörg Ingadóttir hefur verið ráðin sem nýr aðstoðarþjálfari hjá Fylki en þetta staðfesti Eiður Benedikt Eiríksson þjálfari Fylkis við Fótbolta.net í dag.

Hún kemur þar með inn í þjálfarateymi Fylkis en Hafsteinn Steinsson hefur verið aðstoðarþjálfari Eiðs í sumar og mynda þau nú þriggja manna þjálfarateymi.
Kristbjörg þekkir vel til í Árbænum en hún þjálfaði kvennaliðs Fylkis sumrin 2005 og 2006. Hún fór upp með liðið árið 2005 og hélt liðinu síðan í efstu deild árið 2006.

Fylkir er í 6. sæti Pepsi-deildar kvenna með 10 stig þegar keppnin í deildinni er hálfnuð.

Liðið mætir Val í næstu umferð á þriðjudaginn næstkomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.