22.07.19 - 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
AZ fær Jordy Clasie frá Southampton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Southampton staðfesti í dag að Jordy Clasie hafi yfirgefið félagið. Clasie gengur í raðir hollenska félagsins AZ Alkmaar.
Tími Clasie hjá Southampton má líta á sem talsverð vonbrigði því miklar væntingar voru gerðar til Hollendingsins þegar hann gekk í raðir Southampton árið 2015.
Clasie lék 49 leiki fyrir Dýrlingana og fáir þeirra komu undanfarin tvö ár.

Árið 2017 var hann sendur á lán til Club Brugge og á síðustu leiktíð lék hann hjá Feyenoord.
Clasie er 28 ára og spilar á miðjunni. Kaupverðið er ekki uppgefið en tekið er fram að Southamton mun fá greiðslur þegar AZ selur hann og þá mun enska félagið einnig fá árangurstengdargreiðslur.