Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. júlí 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Chelsea lánar Ampadu til RB Leipzig (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur lánað hinn unga Ethan Ampadu til RB Lepzig Þýskalandi en gengið var frá þessu í dag.

Hinn 18 ára gamli Ampadu kom til Chelsea frá Exeter fyrir tveimur árum.

Ampadu getur spilað bæði á miðjunni og í vörninni en hann á tólf leiki að baki með aðalliði Chelsea.

Ampadu er mikið efni en hann hefur nú þegar spilað átta leiki með landsliði Wales.

Á komandi tímabili mun hann fá meiri reynslu með því að spila í þýsku Bundesligunni.
Athugasemdir
banner
banner