Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. júlí 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Filipe Luis til Flamengo (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Filipe Luis hefur yfirgefið herbúðir Atletico Madrid og gengið í raðir Flamengo í Brasilíu.

Hinn 33 ára gamli Luis hefur spilað 333 leiki með Atletico síðan hann kom til félagsins frá Deportivo La Coruna árið 2010.

Á þessum tíma hefur hann unnið sjö titla með Atletico.

Luis kvaddi Atletico Madrid um helgina og var um tilfinningaþrungna stund að ræða.

„Það var ekki auðvelt að yfirgefa Atletico en ég vil enda ferilinn í Brasilíu," sagði Luis.

Athugasemdir
banner
banner