Fjölnir 3 - 1 Þróttur R.
1-0 Jóhann Árni Gunnarsson ('31)
2-0 Michael Bakare ('45)
3-0 Sigurpáll Melberg Pálsson ('55)
3-1 Baldur Hannes Stefánsson ('93, víti)
Rautt spjald: Sigurpáll Melberg Pálsson , Fjölnir ('75)
1-0 Jóhann Árni Gunnarsson ('31)
2-0 Michael Bakare ('45)
3-0 Sigurpáll Melberg Pálsson ('55)
3-1 Baldur Hannes Stefánsson ('93, víti)
Rautt spjald: Sigurpáll Melberg Pálsson , Fjölnir ('75)
Fjölnir tók á móti Þrótti R. í eina leik kvöldsins í Lengjudeild karla og úr varð fjörug viðureign.
Bæði lið komust nálægt því að skora áður en fyrsta mark leit dagsins ljós. Þar var Jóhann Árni Gunnarsson á ferðinni, hann fylgdi skalla frá Ragnari Leóssyni sem hæfði þverslána eftir með marki.
Fjölnismenn skiptu um gír eftir markið og fengu góð færi til að tvöfalda forystuna áður en Michael Bakare setti knöttinn í netið. Hann komst innfyrir vörn Þróttar og kláraði laglega. Staðan 2-0 í leikhlé.
Heimamenn í Grafarvogi fóru vel af stað í síðari hálfleik og settu þriðja markið snemma. Sigurpáll Melberg Pálsson skoraði þá eftir undirbúning frá Bakare sem átti stórleik.
Leikurinn róaðist aðeins niður við þriðja markið en svo fékk Sigurpáll Melberg sitt annað gula spjald á 75. mínútu og skutu Þróttarar í stöng skömmu síðar. Þar hefðu þeir getað komist aftur inn í leikinn gegn tíu Fjölnismönnum.
Þróttarar reyndu að minnka muninn en það hafðist ekki fyrr en í uppbótartíma, þegar Baldur Hannes Stefánsson skoraði af vítapunktinum.
Sanngjarn sigur Fjölnis sem er í toppbaráttunni með 20 stig eftir 13 umferðir. Þróttur er aðeins með 7 stig í fallsæti, þó ekki nema tveimur stigum á eftir nýliðunum frá Selfossi.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir