Fotbolti.net
22.07.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Van Bommel tekur við belgíska landsliðinu

Van Bommel tekur við belgíska landsliðinu
Canon

Mynd: EPA

Mark van Bommel verður næsti landsliðsþjálfari Belgíu samkvæmt heimildum Sky Sports.
Þessi fyrrum miðjumaður Barcelona og Bayern Munchen mun stýra Belgíu á EM 2028. Talið er að belgíska fótboltasambandið muni kynna hann í þessari viku.

Þessi 49 ára gamli Hollendingur tekur við af Rudi Garcia sem hætti eftir að Belgía féll úr leik á HM í sumar. Garcia valdi að framlengja ekki samninginn eftir að hann stýrði liðinu í átta liða úrslit þar sem þeir töpuðu gegn Spáni sem stóð uppi sem heimsmeistari.

Van Bommel hefur stýrt PSV, Wolfsburg og Royal Antwerp síðan hann lagði skóna á hilluna árið 2013. Hann vann deild og bikar með Royal Antwerp tímabilið 2022/23.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.