Frá Fiorentina til QPR (Staðfest)

Mynd: QPR

Mynd: QPR
Tariq Lamptey er genginn til liðs við QPR á frjálsri sölu eftir að samningi hans við Fiorentina var rift í sumar.
Lamptey er 25 ára gamall bakvörður og er uppalinn hjá Chelsea. Hann gekk til liðs við Brighton árið 2020 en hélt til Ítalíu í fyrra.

Hann sleit krossband eftir 22 mínútur í sínum fyrsta byrjunarliðsleik með Fiorentina en hann hafði aðeins spilað þrjár mínútur í ítölsku deildinni fyrir það. Hann spilaði ekki meira fyrir ítalska liðið.
Lamptey spilaði fyrir yngri landslið Englands en spilaði sinn fyrsta A-landsleik fyrir Gana árið 2022. Hann hefur spilað 11 landsleiki.
QPR hafnaði í 15. sæti í Championship deildinni á síðustu leiktíð.