Fotbolti.net
22.08.16 - 22:29
Arnar Geir Halldórsson

Jaap Stam kaupir Tyler Blackett (Staðfest)

Blackett er farinn frá Man Utd

Blackett er farinn frá Man Utd

Canon

Mynd: Getty Images

Enska B-deildarliðið Reading hefur gengið frá kaupum á enska varnarmanninum Tyler Blackett sem kemur frá Man Utd.
Man Utd goðsögnin Jaap Stam tók við stjórnartaumunum hjá Reading í sumar og leitar til síns gamla félags eftir liðsstyrk.

Hinn 22 ára gamli Blackett gerir þriggja ára samning við Reading en hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá skoska stórveldinu Celtic.

Blackett lék 11 leiki fyrir aðallið Man Utd en þeir komu allir leiktíðina 2014-2015 þegar Louis van Gaal stýrði liðinu.

Jose Mourinho hefur verið duglegur að losa sig við varnarmenn að undanförnu en fyrr í dag var Cameron Borthwick-Jackson lánaður til Wolves og Paddy McNair og Donald Love voru seldir til Sunderland á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.