22.08.17 - 19:30
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Southampton fær varnarmann Lazio (Staðfest)

Wesley Hoedt er genginn í raðir Southampton

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið, Southampton, hefur nælt sér í nýjan leikmann. Hollenski varnarmaðurinn Wesley Hoedt skrifaði undir hjá félaginu nú undir kvöld. Kaupverðið er talið vera um 15 milljónir punda.
Hoedt gekk undir læknisskoðun hjá félaginu í gær og skrifaði svo í kvöld undir fimm ára samning við Southampton.
<i>„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað. Mér finnst Southampton mjög stór klúbbur, svo það er gott skref fyrir mig að koma hingað og spila í ensku úrvalsdeildinni og reyna að hjálpa liðinu eins og ég get,\"</i> sagði Hoedt við opinbera heimasíðu Southampton.
Hoedt, sem er 23 ára gamall, kom til Lazio árið 2015 frá AZ Alkmaar í Hollandi á frjálsri sölu. Hann spilaði 48 deildarleiki fyrir Lazio og skoraði hann tvö mörk fyrir félagið.