Fotbolti.net
22.09.16 - 12:13
Magnús Már Einarsson

Brynjar Gests tekur við Þrótti Vogum (Staðfest)

Úr Þrótti Reykjavik yfir í Þrótt Vogum.

Úr Þrótti Reykjavik yfir í Þrótt Vogum.

Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Brynjar Gestsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar í Vogum sem leikur í 3. deildinni. Brynjar hefur einnig verið ráðinn sem yfirþjálfari yngri flokka hjá félaginu.

Gengið var frá ráðningunni í síðustu viku en Þróttur staðfesti tíðindin í fréttatilkynningu í dag.
Í sumar hefur Brynjar verið aðstoðarþjálfari hjá Þrótti Reykjavík sem og yfirþjálfari yngri flokka. 2013-2015 stýrði Brynjar liði Fjarðabyggðar og kom því úr þriðju deild upp í þá fyrstu.

Brynjar er 42 ára hefur lokið UEFA A prófi í þjálfaramenntun en hann er íþróttafræðingur. Brynjar hefur mikla reynslu í þjálfun en á ferlinum hefur hann meðal annars þjálfað Fjarðabyggð, Víði, ÍR, Þrótti R, Huginn, auk þess að hafa leikið í meistaraflokki með FH, Haukum og fleiri liðum.

„Þróttur Vogum hefur undanfarið leitað leiða til styrkja og efla starfsemi yngri flokka félagsins. Brynjar mun sinna þjálfun og skipulagi yngri flokkanna ásamt þjálfun meistaraflokks karla,\" segir í fréttatilkynningu frá Þrótti.

„Helstu verkefni Brynjars verður að móta starfið til framtíðar. Efla uppeldis og afreksstarfið hjá yngriflokkunum. Uppbygging yngri flokkanna er fjöregg félagsins og ráðning þessi staðfestir að félagið ætlar sér stærri hluti á komandi árum. Samningurinn er til 2019.

\"Þróttur Vogum býður Binna hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins.\"


Þróttur Vogum fór upp úr 4. deildinni í fyrra en liðið endaði í 5. sæti í 3. deildinni í ár. Björgvin Freyr Vilhjálmsson stýrði liðinu síðari hluta tímabils en hann hætti störfum á dögunum.
Brynjar á hliðarlínunni í Pepsi-deildinni í sumar.

Brynjar á hliðarlínunni í Pepsi-deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.