Fotbolti.net
22.09.16 - 15:33
Magnús Már Einarsson

Eiður hættur með Fylki - Kristbjörg tekur við (Staðfest)

Eiður Benedikt Eiríksson.

Eiður Benedikt Eiríksson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Knattspyrnudeild Fylkis og Eiður Benedikt Eiríksson þjálfari kvennaliðs Fylkis hafa komist að samkomulagi um að Eiður láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fylki.
Eiður hættir strax með liðið. Hafsteinn Steinsson aðstoðarþjálfari liðsins hættir einnig.

„Knattspyrnudeild Fylkis þakkar Eiði fyrir hans framlag og óskar honum velfarnaðar í hans störfum í framtíðinni,\" segir í yfirlýsingu frá Fylki.

Kristbjörg Helga Ingadóttir, sem hefur verið í þjálfarateyminu að undanförnu, mun stjórna síðustu tveimur leikjum liðsins í Pepsi-deildinni í sumar.

Fylkir er í 7. sæti deildarinnar með 13 stig, stigi frá fallsvæðinu fyrir lokaumferðina. Fylkir mætir Þór/KA á Akureyri á laugardag áður en liðið leikur við Selfoss í lokaumferðinni í næsu viku.

Yfirlýsing Eiðs Benedikts fráfarandi þjálfara
„Ég vil nota tækifærið og þakka starfsfólki, stjórn stuðningsmönnum, sjálfboðaliðum, meðþjálfurum og leikmönnum fyrir samstarfið Frá fyrsta degi leið mér mjög vel hjá Fylki og er það sérstaklega því góða fólki sem kemur að klúbbnum að þakka.\"

„Því miður var tímabilið mikil vonbrigði og tel ég að ástæðan fyrir því hafi verið að ég vildi breyta of miklu á stuttum tíma í stað þess að halda í það góða sem var fyrir.

Á þessu eina ári fengu margir ungir leikmenn sýna eldskírn með meistaraflokki og er ég viss um að þeir leikmenn munu verða lykilleikmenn með tíð og tíma. Með virðingu og vinsemd.
Eiður Benedikt Eiríksson\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.