Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. september 2019 18:52
Brynjar Ingi Erluson
Álasund á flugi - Davíð Kristján lagði upp í sigri
Davíð Kristján Ólafsson lagði upp mark fyrir Álasund
Davíð Kristján Ólafsson lagði upp mark fyrir Álasund
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Norska B-deildarliðið Álasund er á gríðarlegri siglingu en liðið er komið langleiðina með að tryggja sæti í efstu deild eftir 3-1 sigur á Notodden.

Samúel Kári Friðjónsson og hans menn í Viking fögnuðu 4-0 sigri á Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni. Samúel lék allan leikinn fyrir Viking og Matthías Vilhjálmsson lék þá einnig allan leikinn fyrir Vålerenga.

Oliver Sigurjónsson var ekki í leikmannahópi Bodo/Glimt í 1-1 jafntefli gegn Ranheim en Bodo/Glimt er í öðru sæti með 44 stig. Arnór Smárason spilaði allan leikinn í 1-1 jafntefli Lilleström gegn Kristiansund.

Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn fyrir Álasund en hann lagði einnig upp annað markið. Hólmbert Aron Friðjónsson kom inná sem varamaður á 77. mínútu á meðan Aron Elís Þrándarson sat allan tímann á bekknum. Daníel Leó Grétarsson tók þá út leikbann.

Álasund er í 1. sæti deildarinnar með 63 stig þegar sex leikir eru eftir en Sandefjord, sem er í 2. sæti, er þrettán stigum á eftir toppliðinu.

Viðar Ari Jónson spilaði þá allan leikinn fyrir Sandefjord í 3-3 jafntefli gegn KFUM. Emil Pálsson var allan tímann á bekknum hjá Sandefjord.

Aron Sigurðarson lék þá allan leikinn í 4-0 tapi Start gegn Hamkam en Start er í 3. sæti með 49 stig og í harðri baráttu um að komast upp.

Mikael spilaði í markalausu jafntefli - Hjörtur enn á bekknum

Mikael Anderson, leikmaður U21 árs landsliðsins, var þá í byrjunarliði Midtjylland í markalausu jafntefli gegn FCK en Mikael fór af velli eftir klukkutímaleik. Hjörtur Hermannsson sat þá allan tímann á bekknum er Brondby tapaði Esbjerg 3-1.

Eggert Gunnþór Jónsson lék þá allan tímann fyrir SonderjyskE sem gerði 1-1 jafntefli við Hobro en Ísak Óli Ólafsson var á bekknum hjá SonderjyskE.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner