West Brom 4 - 2 Huddersfield
0-1 Lewis O'Brien ('16 )
1-1 Matthew Phillips ('19 )
1-2 Karlan Grant ('36 )
2-2 Darnell Furlong ('69 )
3-2 Matthew Phillips ('74 )
4-2 Semi Ajayi ('89 )
0-1 Lewis O'Brien ('16 )
1-1 Matthew Phillips ('19 )
1-2 Karlan Grant ('36 )
2-2 Darnell Furlong ('69 )
3-2 Matthew Phillips ('74 )
4-2 Semi Ajayi ('89 )
Það gengur lítið sem ekkert hjá Huddersfield í Championship-deildinni. Liðið heimsótti West Brom í hádegisleik.
Huddersfield byrjaði leikinn ágætlega og komst 1-0 yfir á 16. mínútu þegar Lewis O'Brien skoraði. Matt Phillips jafnaði fyrir West Brom stuttu síðar, en það var Huddersfield sem leiddi í hálfleik. Karlan Grant skoraði fyrir leikhlé.
Í seinni hálfleiknum var West Brom hins vegar sterkara liðið. Darnell Furlong jafnaði á 69. mínútu og fimm mínútum eftir það gerði Matt Philipps sitt annað mark.
Á 89. mínútu gerði Semi Ajayi út um leikinn fyrir West Brom. Lokatölur 4-2.
West Brom er í fjórða sæti með 16 stig. Huddersfield, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, er á botninum með eitt stig.
Athugasemdir