Kólumbíumaðurinn Andres 'Manga' Escobar var fyrr á þessu ári dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot hérna á Íslandi.
Manga lék með Leikni Reykjavík á síðasta tímabili en yfirgaf félagið eftir tímabilið. Samningurinn við Leikni rann út um miðjan október mánuð.
Kólumbíumaðurinn áfrýjaði dómnum en núna hefur Landsréttur staðfest upprunalega dóminn.
Auk þess sem hann þarf að sitja í fangelsi, þá þarf Manga að greiða allan sakarkostnað í málinu auk þess sem hann þarf að greða brotaþola 1,8 milljónir í miskabætur - auk vaxta.
Hægt er að lesa dóminn í heild sinni með því að smella hérna.
Athugasemdir