Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 22. september 2022 23:16
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho með leiksigur í myndbandi eins þekktasta rappara Bretlandseyja
Jose Mourinho og Stormzy í myndbandinu
Jose Mourinho og Stormzy í myndbandinu
Mynd: Af netinu
Portúgalski þjálfarinn Jose Mourinho og breski rapparinn Stormzy sameinuðu krafta sína í myndbandi við nýjasta smell hans, Mel Made Me Do It.

Það er aldrei lognmolla í kringum Mourinho í viðtölum, blaðamannafundum eða bara almennt þegar hann opnar á sér munninn.

Ein þekktustu ummæli hans komu eftir 1-0 tap Chelsea fyrir Aston Villa árið 2014. Ramires og Willian voru báðir reknir af velli í þeim leik og eftir hann mætti Mourinho í viðtal. Þar var hann spurður út í dómgæsluna.

„Ég kýs að tjá mig ekki og ef ég geri það þá kem ég mér í mikil vandræði," sagði Mourinho eftir leikinn en þau ummæli hafa verið farandbrandari á samfélagsmiðlum síðan.

Þetta eru það stór ummæli að breski rapparinn Stormzy notaði ummælin í texta við lagið Mel Made Me Do It og gerði hann gott betur en það og ákvað að fá Mourinho til að leika í myndbandinu með honum en hér fyrir neðan má sjá afraksturinn. Algjör leiksigur hjá portúgalska þjálfaranum.


Athugasemdir
banner
banner
banner