Fotbolti.net
22.09.25 - 18:20
Kári Snorrason

Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Ögmundur byrjar í fyrsta sinn í deild í rúmt ár

Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Ögmundur byrjar í fyrsta sinn í deild í rúmt ár
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur fær Breiðablik í heimsókn á Hlíðarenda í lokaleik 23. umferðar Bestu-deildarinnar í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og búið er að opinbera byrjunarliðin.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Breiðablik
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar frá 1-2 tapi gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Jakob Franz Pálsson og markvörðurinn Stefán Þór Ágústsson taka sér sæti á bekknum.

Í þeirra stað kemur fyrirliðinn Hólmar Örn Eyjólfsson og Ögmundur Kristinsson.

Ögmundur spilaði síðast deildarleik fyrir Val þann 16. september á síðasta ári. Síðasti leikur Ögmundar fyrir Val var í mars en þá var hann rekinn af velli í sigri Vals á ÍR í undanúrslitaleik Lengjubikarsins.

Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, gerir þrjár breytingar frá 1-1 jafntefli gegn ÍBV í síðasta leik Breiðabliks. Inn í byrjunarliðið koma þeir Kristinn Jónsson, Viktor Örn Margeirsson og Tobias Thomsen.

Úr byrjunarliðinu víkja þeir Kristinn Steindórsson, Ásgeir Helgi Orrason og Davíð Ingvarsson. Kristinn er í leikbanni en Davíð er utan hóps vegna meiðsla.

Byrjunarlið Valur

Ögmundur Kristinsson, Markus Lund Nakkim, Bjarni Mark Antonsson, Jónatan Ingi Jónsson, Kristinn Freyr Sigurðsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson, Albin Skoglund, Hólmar Örn Eyjólfsson (fyrirliði), Lúkas Logi Heimisson, Orri Sigurður Ómarsson, Birkir Heimisson

Byrjunarlið Breiðablik

Anton Ari Einarsson, Höskuldur Gunnlaugsson (fyrirliði), Viktor Karl Einarsson (fyrirliði), Óli Valur Ómarsson, Ágúst Orri Þorsteinsson, Valgeir Valgeirsson, Kristinn Jónsson, Viktor Örn Margeirsson, Kristófer Ingi Kristinsson, Damir Muminovic, Tobias Thomsen

Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Ögmundur byrjar í fyrsta sinn í deild í rúmt ár
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.