Fotbolti.net
22.10.20 - 14:15
Elvar Geir Magnússon

Aron Dagur búinn að rifta samningi við KA

Aron Dagur búinn að rifta samningi við KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Aron Dagur Birnuson hefur nýtt sér riftunarákvæði í samningi sínum við KA. Hann hafði tök á að nýta sér ákvæðið núna seinni hluta októbermánaðar og hefur gert það.

Þetta staðfesti Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, í samtali við Fótbolta.net.
Aron er 21 ára og byrjaði tímabilið sem aðalmarkvörður en hann hefur leikið fimm leiki í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Kristijan Jajalo hefur spilað hina þrettán leikina en hann skrifaði á dögunum undir nýjan samning við félagið.

KA er í sjöunda sæti Pepsi Max-deildarinnar en áætlað er að keppni í deildinni fari aftur af stað í næsta mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.