Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 22. október 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Nýtti dómarann til að leika á Wolfsburg
Mynd: Youtube Red Bull Salzburg
Luka Sucic er 19 ára gamall miðjumaður frá Króatíu sem hefur verið að gera frábæra hluti með ógnarsterku liði RB Salzburg frá Austurríki.

Auk þess að vera langbesta liðið í Austurríki hefur Salzburg tekist að ná frábærum árangri í Evrópukeppnum undanfarin ár.

Eftir 3-1 sigur gegn Wolfsburg í vikunni er Salzburg með sjö stig á toppi G-riðils Meistaradeildarinnar. Salzburg er jafnframt eina liðið í riðlinum sem hefur sigrað leik, þar sem Sevilla er í öðru sæti með þrjú stig eftir þrjú jafntefli og Lille með tvö stig eins og Wolfsburg.

Salzburg spilaði frábæran bolta gegn Wolfsburg og átti Sucic góðan leik. Skemmtilegt myndband af honum að rekja boltann á miðjunni hefur farið sem eldur um sinu á spjallborðum veraldarvefsins, þar sem hann snýr á tvo andstæðinga með aðstoð frá nærveru dómarans.

Hinn bráðefnilegi Sucic spilaði sinn fyrsta A-landsleik fyrir Króatíu fyrr á árinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner