Fotbolti.net
22.11.12 - 13:23
Magnús Már Einarsson

Alexander Scholz í Lokeren (Staðfest)

Scholz fagnar marki í sumar.

Scholz fagnar marki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Alexander Scholz hefur yfirgefið Stjörnuna og gengið til liðs við belgíska félagið Lokeren.

Þessi tvítugi danski varnarmaður skrifaði undir samning við Lokeren til ársins 2015 með möguleika á árs framlengingu.
Stjarnan samþykkti tilboð Lokeren í Scholz í síðustu viku en hann stóð sig vel á reynslu hjá félaginu á dögunum.

,,Þetta er fínt félag. Þetta er svolítið líkt Stjörnunni því að þetta er ekki stærsta félagið en þeir eru á uppleið. Þeir eru að nota mikið af ungum leikmönnum og þetta ætti því að vera gott tækifæri fyrir mig,\" sagði Scholz við Fótbolta.net í síðustu viku aðspurður út í Lokeren.

Scholz hætti í fótbolta árið 2011 og fór að ferðast um heiminn. Hann samdi hins vegar við Stjörnuna síðastliðinn vetur og var mjög ánægður með sumarið á Íslandi.

,,Ég dýrkaði það að spila hérna. Þetta er auðveldara þegar það gengur vel en allt sumarið var frábært. Þetta eru blendnar tilfinningar núna en ég held að ég komi aftur til Íslands. Ekki endilega til að spila fótbolta heldur til að njóta þess að vera hér. Ég væri til í að flytja hingað, en bara yfir sumartímann. Þetta er ekki bara einhver klisja sem ég er að segja, ég kunni mjög vel við mig hér.\"

Heimild: Heimasíða Lokeren

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.