22.11.16 - 15:07
Magnús Már Einarsson
Atli Viðar áfram hjá FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Viðar Björnsson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Íslandsmeistara FH.
Atli Viðar verður 37 ára í janúar næstkomandi en hann hefur raðað inn mörkum með FH á ferli sínum.
Samningur Atla átti að renna út um áramótin en nú er ljóst að hann verður áfram hjá FH.
Í sumar skoraði Atli Viðar sjö mörk í sautján leikjum í Pepsi-deildinni en hann kom oft inn á sem varamaður.
Árið 2014 skoraði Atli átta mörk í Pepsi-deildinni sem og árið 2015.
Atli er uppalinn hjá Dalvík en hann fór til FH fyrir tímabilið 2001. Atli hefur leikið með FH alla tíð síðan þá fyrir utan tímabilið 2007 þegar hann var á láni hjá Fjölni.

Gleðifréttir úr Kaplakrika: Atli Viðar Björnsson skrifaði í dag undir nýjan samning við FH, sem gildir út tímabilið 2017.#ViðerumFH pic.twitter.com/Dn0hSpBGDn
— FHingar.net (@fhingar) November 22, 2016