22.11.16 - 18:54
Þorsteinn Haukur Harðarson
Bruce Arena tekur aftur við Bandaríkjunum (Staðfest)

Bruce Arena verður formlega landsliðsþjálfari Bandaríkjanna 1. desember.

Mynd: Getty Images

Bandaríska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Bruce Arena verði næsti landsliðsþjálfari Bandaríkjanna í knattspyrnu. Hann tekur við liðinu af Jurgen Klinsmann sem var rekinn í gær.
Bruce Arena er öllum hnútum kunnugur í bandaríska boltanum en hann hefur þjálfað Los Angeles Galaxy með góðum árangri frá árinu 2008. Hann mun hann hætta með LA Galaxy og einbeita sér að landsliðinu.
Sjálfur var Arena markvörður á sínum tíma og lék einn leik fyrir bandaríska landsliðið.
Þetta er í annað sinn sem Arena tekur við landsliði Bandaríkjanna en hann stýrði því 1998-2006. Hann kom liðinu í 8-liða úrslit á HM 2002 en hætti eftir að honum mistókst að koma liðinu upp úr riðlinum á HM 2006.
Bandaríkin hafa farið illa af stað í undankeppninni fyrir HM 2018 en Arena á að snúa því gengi við og koma liðinu til Rússlands. Bandaríkin eru á botni riðils síns í undankeppninni eftir að hafa tapað gegn Mexíkó og Kosta Ríka.
Íslendingurinn Aron Jóhannsson er með bandarískan ríkisborgararétt og hefur verið að spila með landsliðinu.
Klinsmann fékk til marga leikmenn til að spila fyrir Bandaríkin þó þeir hafi ekki alist upp í landinu. Hann hefur fengið einhverja gagnrýni fyrir það.
Arena sagði í viðtali fyrr á árinu að ef menn séu með bandarískt vegabréf eigi þeir að hafa möguleika á að spila fyrir landsliðið.
„En hafi sagt það þá tel ég að það verði að vera þér mikilvægt að spila fyrir landsliðið, sama hver bakgrunnur þinn er og hvernig þú fékkst vegabréfið. Þú þarft að spila með stolti og það er mikilvægt hjá landsliðsmanni,\" sagði Arena í viðtalinu.