22.11.16 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Hannes Jón tekur við Reyni Sandgerði (Staðfest)

Mynd: Reynir Sandgerði

Mynd: Reynir Sandgerði
Hannes Jón Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Reyni Sandgerði en samningur þess efnis var undirritaður í gærkvöldi.
Hannes hefur lokið UEFA A þjálfaragráðu og hefur víðtæka reynslu af þjálfun, bæði sem aðal- og aðstoðarþjálfari.
Hann hefur meðal annars stýrt meistaraflokki RKV, Magna Grenivík og hefur starfað sem yfirþjálfari yngri flokka hjá Þór Akureyri.
Hann var ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks sl. sumar en tekur nú við keflinu af Hafsteini Rúnari Helgasyni sem þjálfað hafði Reyni síðustu tvö tímabil.
„Stjórn Knattspyrnudeildar Reynis lýsir yfir ánægju sinni með ráðninguna og óskar Hannesi velfarnaðar í störfum sínum fyrir félagið,\" segir í tilkynningu frá Reyni.
Reynir Sandgerði leikur í 3. deild en liðið endaði í sjötta sæti deildarinnar í sumar.
Hér til hliðar er mynd frá undirritun samningsins í gær. Frá vinstri: Hannes Jón Jónsson og Ari Gylfason, formaður Knattspyrnudeildar.