22.11.16 - 19:08
Elvar Geir Magnússon
Ólína tekur skóna úr hillunni - Spilar með KR (Staðfest)

Ólína í landsleik 2014.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólína í landsleik 2014.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólína Viðarsdóttir skrifaði í dag undir samning við KR til tveggja ára. Ólína, sem er 34 ára, er fótboltaáhugafólki að góðu kunn en hún hefur leikið 70 landsleiki fyrir Ísland.
Ólína lék síðast með KR árið 2009 en í framhaldi hélt hún út í atvinnumennsku og lék í Svíþjóð og Englandi við góðan orðstír.
Á Íslandi hefur hún ásamt KR spilað með Grindavík, Breiðabliki, Val og Fylki.
Hún spilaði með Fylki sumarið 2015 en lagði svo skóna á hilluna. Það var þó aðeins tímabundið.
KR bjargaði sér frá falli á ævintýralegan hátt í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í sumar. Félagið hefur nú blásið í herlúðra fyrir næsta tímabil. Hólmfríður Magnúsdóttir, Katrín Ómarsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir hafa allir samið við félagið eftir að hafa leikið erlendis.