22.11.18 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Andri Gísla í Fjarðabyggð (Staðfest)

Andri fagnar marki með Gróttu árið 2013.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Andri fagnar marki með Gróttu árið 2013.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Fjarðabyggð hefur fengið framherjann Andra Gíslason frá Víði Garði en bæði þessi lið leika í 2. deildinni næsta sumar.
Andri er 26 ára framherji og hefur leikið samtals 108 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 48 mörk.
Síðastliðið sumar var Andri markahæstur í liði Víðis með níu mörk í nítján leikjum.
Andri er 26 ára framherji og hefur leikið samtals 108 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 48 mörk.
Síðastliðið sumar var Andri markahæstur í liði Víðis með níu mörk í nítján leikjum.
„Andri er uppalinn hjá FH og hefur á ferli sínum spilað m.a. með Þrótti Vogum og Þrótti Reykjavík. Hann heldur sig því við Þrótt með félagaskiptunum í Fjarðabyggð en Þróttur Neskaupstað er að sjálfsögðu eitt aðildarfélaga Fjarðabyggðar," segir á Facebook síðu Fjarðabyggðar.
