22.11.18 - 17:30
Arnar Helgi Magnússon
Einar Orri, Eyþór Helgi og Magnús Þórir í Kórdrengi (Staðfest)

Frá vinstri Davíð Smári þjálfari, Magnús Þórir, Einar Orri og Alexander Magnússon við undirskriftina.

Mynd: Kórdrengir

Eyþór Helgi Birgisson

Kórdrengir eru svo sannarlega með klærnar úti á félagsskiptamarkaðnum en liðið fékk til sín fjóra reynslumikla leikmenn í dag.
Þetta eru þeir Einar Orri Einarsson, Eyþór Helgi Birgisson og Magnús Þórir Matthíasson.

Einar Orri yfirgaf Keflavík í byrjun vikunnar en hann lék allan sinn feril með Keflavík. Hann spilaði 180 leiki fyrir Keflavík og skoraði í þeim tíu mörk.
„Einari Orra stóðu mörg tilboð til boða en ákvað að ganga til liðs við Kórdrengi í krefjandi en spennandi verkefni að koma sér uppúr 3. deildinni," segir í fréttatilkynningu Kórdrengja.
Magnús Þórir lék með Reyni í sumar og stóð sig frábærlega. Hann kom að helming marka liðsins, skoraði 22 mörk og lagði upp ellefu.
„Frábær styrkur sem mun nýtast Kórdrengjum virkilega vel," segir um Magnús Þóri.
Eyþór Helgi er mættur aftur til Kórdrengja eftir að hafa spilað með Árborg í sumar. Á sínum meistaraflokksferli hefur hann spilað meðal annars fyrirð ÍBV, HK og Víking Ólafsvík.
Alexander Magnússon hefur ákveðið að framlengja samning sinn við Kórdrengi eftir að hafa átt frábært tímabil. Hann hefur spilað fyrir Grindavík, Njarðvík og Keflavík á sínum meistaraflokksferli.
„Kórdrengir eru gífurlega ánægðir með komu þessara drengja, sem eru mikil styrking inn í liðið. Okkur hlakkar til að takast á við komandi verkefni," segir á Facebook-síðu Kórdrengja.
Kórdrengir tryggðu sér í sumar sæti í 3. deildinni næsta tímabil þar sem að þeir ætla sér greinilega stóra hluti.