Youssoufa Moukoko varð í gær yngsti leikmaðurinn til að spila í þýsku deildinni er hann kom inná sem varamaður í 5-2 sigri Borussia Dortmund á Herthu Berlín.
Moukoko varð 16 ára gamall á föstudaginn og var því gjaldgengur til að spila með aðalliði Dortmund í fyrsta sinn er liðið spilaði við Herthu Berlín í gær.
Hann kom inná sem varamaður fyrir Erling Braut Haaland á 86. mínútu og varð þar með yngsti leikmaðurinn í sögunni til að spila í þýsku deildinni.
Moukoko er fæddur í Kamerún en flutti til Þýskalands til að búa með föður sínum. Hann hefur raðað inn mörkum fyrir yngri lið Dortmund og fékk svo tækifærið í gær.
Hann þykir einn efnilegasti framherji heims og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni.
At 16 years and one day, Youssoufa Moukoko becomes the youngest player in Bundesliga history 🤩 pic.twitter.com/Gcvd8VoGxt
— B/R Football (@brfootball) November 21, 2020
Athugasemdir