Fotbolti.net
22.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópa í dag - Barca og Atlético eiga leiki

Evrópa í dag - Barca og Atlético eiga leiki
Canon

Mynd: EPA

Það eru leikir á dagskrá í sterkustu deildum Evrópu í dag og í kvöld þar sem Spánarmeistarar Barcelona mæta til leiks rétt eftir hádegi.
Börsungar taka á móti Villarreal í spennandi slag í La Liga og stíga Orri Steinn Óskarsson og félagar í liði Real Sociedad svo á völlinn eftir leikslok. Sociedad heimsækir nýliða Racing Santander og er Orri búinn að skora fimm mörk í síðustu sex leikjum.

Atlético Madrid lokar svo kvöldinu á Spáni á útivelli gegn Getafe og þurfa lærlingar Diego Simeone á sigri að halda í toppbaráttunni.

Þá eru leikir á dagskrá í Þýskalandi og Frakklandi. Augsburg og Werder Bremen eiga heimaleiki í Þýskalandi og spilar áhugavert lið Paris FC heimaleik í Frakklandi.

Paris getur hirt annað sæti Ligue 1 deildarinnar með sigri og komið sér þremur stigum á eftir nágrönnum sínum í risaveldi PSG sem tróna á toppnum.

Marseille, sem er tveimur stigum á eftir Paris, tekur svo á móti fallbaráttuliði Le Mans og getur blandað sér í toppbaráttuna með sigri.

La Liga
13:00 Barcelona - Villarreal
15:15 Racing Santander - Real Sociedad
17:30 Osasuna - Malaga
20:00 Getafe - Atletico Madrid

Bundesliga
14:30 Augsburg - Mainz
16:30 Werder Bremen - Hamburger SV

Ligue 1
14:00 Paris FC - Angers
16:15 Lorient - Rennes
19:45 Marseille - Le Mans
Evrópa í dag - Barca og Atlético eiga leiki
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid13+2233
3Atletico Madrid12+1328
4Betis13+527
5Real Sociedad12+122
6Sevilla13-219
7Athletic12+316
8Alaves13016
9Villarreal12+215
10Espanyol13015
11Deportivo13-115
12Racing Santander12-1314
13Celta13-113
14Vallecano12-712
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Valencia13-1112
18Levante12-511
19Elche12-610
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.