22.12.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Greta Mjöll til liðs við Breiðablik að nýju (Staðfest)

Greta Mjöll spilar með liði Breiðabliks næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Gréta Mjöll Samúelsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks en þetta kom fram í yfirlýsingu frá félaginu í gær.
Hún hefur undanfarin ár dvalið við nám og knattspyrnuspark í Bandaríkjunum og spilaði þess vegna ekkert með okkur síðasta sumar.
Gréta Mjöll er hins vegar nú flutt aftur til Íslands og ætlar að taka íslensku knattspyrnuna föstum tökum. Það byrjar vel því það var verið að velja hana í æfingahóp fyrir íslenska kvennalandsliðið næsta sumar.
Það þarf vart að taka fram hve þetta er mikil styrking fyrir Blikaliðið. Gréta Mjöll sem er 25 ára gömul, hefur spilað með meistaraflokki Breiðabliks frá því að hún var 16 ára. Hún á að baki 106 leiki með meistaraflokki Breiðabliks og hefur skorað í þeim 60 mörk.
Gréta Mjöll hefur þar að auki leikið 28 landsleiki með A landsliði Íslands og skorað 3 mörk.