Fotbolti.net
22.12.16 - 17:47
Magnús Már Einarsson

Böddi löpp framlengir við FH (Staðfest)

Böðvar Böðvarsson.

Böðvar Böðvarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Böðvar Böðvarsson, Böddi löpp, hefur framlengt samning sinn við FH út árið 2018.

Fyrri samningur Böðvars við FH var út næsta tímabil.

„Þetta er sannarlega góð jólagjöf fyrir okkur FH-inga,\" segir í tilkynningu frá FH á Facebook.

Böðvar var fastamaður í vinstri bakverðinum hjá FH þegar liðið varð Íslandsmeistari í sumar.

Fyrr á árinu fór Böðvar til danska félagsins FC Midtjylland á láni í nokkrar vikur en hann hefur einnig verið fastamaður í U21 árs landsliðinu undanfarin ár.

Böðvar er 21 árs gamall en hann hefur leikið með meistaraflokki félagsins undanfarin þrjú ár.

@Boddi95 skrifaði í dag undir nýjan samning við FH sem gildir út tímabilið 2018. Þetta er sannarlega góð jólagjöf fyrir okkur FH-inga. pic.twitter.com/OjSOLRYzQD

— FHingar.net (@fhingar) December 22, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.