Fotbolti.net
22.12.16 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fyrrum stjóri Arons Einars tekinn við Coventry (Staðfest)

Slade er kominn með nýtt starf

Slade er kominn með nýtt starf

Canon

Mynd: Getty Images

Russell Slade, fyrrum stjóri Cardiff og Charlton, hefur verið ráðinn til starfa hjá Coventry í ensku C-deilinni, en samningur hans gildir til loka þessa tímabils.

Hinn 56 ára gamli Slade var síðast stjóri Charlton, en hann var látinn fara þaðan í nóvember eftir minna en sex mánuði í starfi.
Slade var stjóri Cardiff þar áður, en þar er landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson á mála. Aron Einar átti ekki fast sæti undir stjórn Slade hjá Cardiff.

Það hefur ekki gengið vel hjá Coventry á þessu tímabili, liðið er í 23. sæti ensku C-deildarinnar og stuðningsmenn eru ósáttir með eigendur félagsins.

Fyrsti leikur Slade með Coventry verður annan í jólum gegn Bristol Rovers og ljóst er að hann á erfitt verkefni fyrir höndum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.