22.12.16 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Óli í Völsung (Staðfest)

Guðmundur Óli í leik með Völsungi árið 2013.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Óli Steingrímsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Völsung á nýjan leik.
Hinn þrítugi Guðmundur Óli lék síðast með Völsungi í 1. deild árið 2013. Undanfarin tvö tímabil hefur hann spilað með Þór.

Fimm aðrir leikmenn skrifuðu einnig undir nýja tveggja samninga við Völsung í gær.
Leikmennirnir sem um ræðir eru Elvar Baldvinsson, Sindri Ingólfsson, Ásgeir Kristjánsson, Arnþór Hermannsson og Eyþór Traustason.
Mikil gleði ríkir eftir að öflugir heimastrákar sýndu uppeldisfélagi sínu tryggð með undirskriftunum í dag. Um er að ræða nokkuð leikreynda kappa, þrátt fyrir nokkuð breitt aldursbil, sem eiga það sameiginlegt að vilja alltaf ná lengra og bæta sig og sitt lið. Með samningunum staðfesta þessir öflugu leikmenn trú sína á því góða starfi sem unnið er hjá Völsungi og auðvitað að sama skapi leggur félagið traust sitt á leikmennina og gerir miklar væntingar til þeirra,\" segir á heimasíðu Völsungs.
„Með undirskriftum dagsins styttist í að samningamál félagsins við núverandi hóp verði kláruð og er það ánægjuefni hversu vel hefur tekist til. Mikil ánægja er með hvernig tekist hefur til og góð mynd er að komast á leikmannahópinn.\"