Fotbolti.net
22.12.16 - 15:05
Magnús Már Einarsson

Pardew rekinn frá Palace (Staðfest) - Tekur Stóri Sam við?

Game over.

Game over.

Canon

Mynd: Getty Images

Alan Pardew hefur verið rekinn frá Crystal Palace en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu. Crystal Palace er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, stigi frá falli, en liðið tapaði 1-0 gegn Chelsea um síðustu helgi. Pardew er sagður fá fimm milljóna punda starfslokasamning.
Heitt hefur verið undir Pardew undanfarnar vikur en Palace fór meðal annars í gegnum sex tapleiki í röð í október og nóvember. Samtals hefur Palace tapað átta af síðustu tíu deildarleikjum.

Pardew hætti hjá Newcastle í lok desember fyrir tveimur árum til að taka við Crystal Palace en hann var á sínum tíma leikmaður síðarnefnda félagsins.

Pardew kom inn með krafti hjá Crystal Palace og hjálpaði liðinu að klifra upp töfluna og enda í 10. sæti. Á síðasta tímabili endaði Palace síðan í 15. sæti í ensku úrvalsdeildinni en Pardew fór einnig með liðið í bikarúrslit gegn Manchester United.

Sam Allardyce þykir líklegastur hjá veðbönkum sem næsti stjóri Palace en næst koma Roy Hodgson og Chris Coleman.

Við ljúkum fréttinni á ógleymanlegum dansi sem Pardew tók þegar Palace komst yfir í bikarúrslitunum síðastliðið vor.

pic.twitter.com/4jvyGZdj2S

— David★Jack (@DamJef) December 22, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.