22.12.16 - 18:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thiago Silva verður hjá PSG til 2020 (Staðfest)

Fyrirliðinn verður áfram í París!

Mynd: Getty Images

Fyrirliðinn verður áfram í París!

Mynd: Getty Images
Thiago Silva, fyrirliði franska meistaraliðsins Paris Saint-Germain, er búinn að skrifa undir framlengingu á samningi sínum og verður hjá félaginu til 2020, en þetta var staðfest í dag.
Framtíð fyrirliðans var í óvissu og var hann meðal annars sterklega orðaður við Ítalíumeistara Juventus, en nú er það ljóst að hann verður áfram í frönsku höfuðborginni.

„Það er gríðarleg ánægja sem fylgir því að framlengja samning minn við Paris Saint-Germain,\" sagði Silva í samtali við heimasíðu félagsins.
„Hér hef ég fundið magnað félag þar sem ég get blómstrað. Ég er mjög stoltur af því að vera fyrirliði þessa liðs, sem hefur unnið allt í Frakklandi síðastliðin tvö tímabil,\" sagði Silva ennfremur eftir að samningurinn var tilkynntur.
Þessi 32 ára gamli leikmaður kom til PSG sumarið 2012, en síðan þá hefur hann unnið níu titla með félaginu. Nú er stefnan sett á að vinna meira.
„Við eigum enn eftir að uppfylla mjög stóra drauma. Ég er sannfærður um að við munum ná að gera það og við munum gera okkar besta í að halda áfram að gera stuðningsmenn okkar ánægða,\" sagði Silva að lokum.

#ThiagoSilva2020 pic.twitter.com/5ythbvGd3O
— PSG English (@PSG_English) December 22, 2016