Fotbolti.net
22.12.19 - 18:14
Aksentije Milisic

Dejan Stankovic ráðinn þjálfari Rauðu Stjörnunnar (Staðfest) - Milos í þjálfarateymið

,,Mourinho missti meðvitund þegar hann frétti þetta’’

Stankovic fagnar marki með Inter.

Stankovic fagnar marki með Inter.

Canon

Mynd: Getty Images

Serbinn Dejan Stankovic, fyrrverandi leikmaður Inter, hefur verið ráðinn þjálfari Rauðu Stjörnunnar frá Serbíu. Stankovic tekur við liðinu af Vladan Milojevic sem hætti með liðið síðastliðinn fimmtudag.

Milos Milojevic, fyrrum þjálfari Víkings Reykjavík og Breiðablik fer í þjálfarateymið hjá Stankovic en Rauða Stjarnan birti mynd af teyminu í kvöld og má sjá hana neðst í fréttinni.

Dejan Stankovic þekkja margir fótboltaáhugamenn. Hann vann ítölsku deildina sex sinnum á sínum ferli sem leikmaður. Einn af þeim vann hann með Lazio en þar lék hann á árunum 1998-2004 en fimm með Inter þar sem hann lék frá 2004-2013. Þá vann hann einnig Meistaradeild Evrópu hjá Inter árið 2010. Stankovic hefur ekki mikla reynslu af meistarflokksþjálfun og ljóst er að þetta er krefjandi verkefni sem hann er að fá hjá þessum sögufræga klúbb.
Tekur við af Milojevic sem náði frábærum árangri
Dejan tekur við liðinu af Milojevic sem náði frábærum árangri á sínum tveimur árum hjá serbnesku meisturunum. Milojevic tók við liðinu árið 2017 og vann strax deildina. Á síðasta tímabili kom hann síðan liðinu í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en þá hafði Rauða Stjarnan ekki tekið þátt í sterkustu evrópukeppninni í 26 ár. Hann gerði sér líka lítið fyrir og lagði verðandi Evrópumeistara að velli þegar liðið vann Liverpool 2-0 á heimavelli. Milojevic vann deildina aftur heima fyrir á síðustu leiktíð og á þessu tímabili kom hann Rauðu Stjörnunni aftur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Hann skilur við liðið þegar það er í efsta sæti deildarinnar, 11 stigum á undan erkifjendunum í Partizan Belgrad.

„Mourinho missti meðvitund þegar hann frétti þetta"
Þetta er fyrsta starfið hjá Stankovic sem aðalþjálfari en hann á aðeins eitt starf að baki sem aðstoðarþjálfari hjá Udinese tímabilið 2014-2015. Dejan ólst upp hjá Red Star á sínum tíma.

„Það var alltaf planið að snúa aftur heim til Rauðu Stjörnunnar. Ég hef verið í fótbolta í 20 ár og ég hef aldrei séð þjálfara sem er að hætta hjá liði taka svona vel á móti þjálfaranum sem tekur við liðinu. Ég vil halda áfram að byggja ofan á það sem Milojevic hefur gert með liðið," sagði Stankovic.

„Mourinho hafði samband við mig þegar hann frétti að ég væri ráðinn þjálfari þessa risa félags. Hann sagði við mig að hann missti meðvitund þegar hann frétti þetta. Hann óska mér til hamingju og góðs gengis," sagði Stankovic og hlóg.

Rauða Stjarnan varð Evrópumeistari árið 1991 þegar liðið lagði Marseille að velli eftir vítaspyrnukeppni og er liðið það sigursælasta í Serbíu. Ljóst er að þetta er risa stórt skref fyrir Milos, sem náði mögnuðum árangri hjá Mjällby í Svíþjóð.

Stuðningsmenn Rauðu Stjörnunnar eru rosalegir.

Stuðningsmenn Rauðu Stjörnunnar eru rosalegir.

Canon

Mynd: Getty Images

Vladan fagnar sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Vladan fagnar sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.