Fotbolti.net
22.12.19 - 17:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Franko Lalic í Þrótt (Staðfest)

Franko Lalic í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur Reykjavík hefur samið við króatíska markvörðinn Franko Lalic um að leika með liðinu á næsta tímabili.
Hann gerir reyndar samning sem rennur ekki út fyrr en eftir keppnistímabilið 2021.

Franko, sem er 28 ára gamall, kemur til Þróttar frá Víkingi Ólafsvík þar sem hann lék 23 leiki í deild og bikar síðastliðið sumar en áður hefur hann leikið í Litháen og Bosníu.

„Við bjóðum Franko velkominn í Dalinn, í hjartað í Reykjavík, og hlökkum til samstarfsins á komandi tímabili í 1.deildinni," segir í tilkynningu Þróttar.

Arnar Darri Pétursson hefur varið mark Þróttar frá 2016, en það er spurning hvað verður um hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.