Fotbolti.net
23.01.19 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Archie Nkumu til Karingey Borough (Staðfest)

Archie Nkumu.

Archie Nkumu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Archie Nkumu, fyrrum miðjumaður KA, hefur gengið til liðs við Karingey Borough FC í ensku utandeildinni.

Karingey spilar í Isthmian deildinni sem er sjöunda efsta deild á Englandi.
Nkumu yfirgaf KA í vetur eftir að hafa spilað á Akureyri undanfarin fjögur ár.

Nkumu skoraði fjögur mörk í 77 leikjum með KA í deild og bikar.

Hann fór með liðinu upp úr Inkasso-deildinni 2016 en síðastliðið sumar skoraði hann eitt mark í sautján leikjum í Pepsi-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.