Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. janúar 2020 20:09
Ívan Guðjón Baldursson
Sveinn Elías áfram hjá Þór (Staðfest)
Mynd: Raggi Óla
Sveinn Elías Jónsson er búinn að framlengja samning sinn við Þór og mun leika með liðinu í 1. deildinni í ár.

Sveinn Elías er fyrirliði Þórs og að spila sitt tólfta tímabil fyrir félagið. Hann er 33 ára gamall og hefur gert 60 mörk í 311 keppnisleikjum hér á landi.

Sveinn spilaði næstum alla leiki Þórs síðasta sumar en ekki var ljóst hvort hann ætlaði að spila áfram með liðinu í ár.

Þór endaði í sjötta sæti Inkasso-deildarinnar í fyrra, með 34 stig. Liðið var átta stigum frá því að komast aftur upp í efstu deild.


Athugasemdir
banner
banner