Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 23. janúar 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Halldór Snær á reynslu hjá Cosenza
Lengjudeildin
Mynd: Fjölnir
Halldór Snær Georgsson er annar leikmaður Fjölnis sem fer til Ítalíu á reynslu eftir helgi. Liðsfélagi hans Júlíus Mar Júlíusson fer til Torino eins og við höfum áður greint frá en Halldór Snær heldur til Cosenza.

Halldór er á átjánda aldursári og var aðalmarkvörður Vængja Júpíters er liðið kom sér aftur upp í 3. deild síðasta haust.

Halldór var í æfingahópi U19 landsliðsins í síðustu viku og verður spennandi fyrir hann að kíkja á reynslu til Ítalíu.

Ítölsk félög hafa mikið verið að horfa til Íslands í leit að efnilegum leikmönnum undanfarin misseri.


Athugasemdir
banner
banner
banner