23.02.19 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jonathan Faerber í Tindastól (Staðfest)

Faerber spilaði þrjá leiki í Pepsi-deildinni síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Ástralski markvörðurinn Jonathan Faerber er genginn í raðir Tindastóls sem leikur í 2. deildinni.
Faerber kemur frá Keflavík. Þar lék hann þrjá leiki í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð. Faerber var þar áður hjá Reyni Sandgerði. Árið 2017 lék hann alla leiki Reynis í 3. deildinni.
Faerber, sem er þrítugur, yfirgaf Ástralíu 2014 í leit að meiri spiltíma. Hann fór til Þýskalands og flakkaði á milli félaga í neðri deildunum þar. Hann flutti til Los Angeles í stuttan tíma áður en hann fékk tilboð frá Íslandi.
Hann segir frá þessu í viðtali við Goal.com.
Tindastóll hafnaði í áttunda sæti 2. deildar á síðustu leiktíð. Faerber mun eflaust leysa af Santiago Fernandez sem var í marki Tindastóls á síðustu leiktíð.