Fotbolti.net
23.02.19 - 15:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nimo Gribenco í Stjörnuna (Staðfest)

Mættur í Stjörnuna.

Mættur í Stjörnuna.

Canon

Mynd: Stjarnan

Stjarnan hefur fengið Nimo Gribenco að láni frá AGF í Danmörku út komandi tímabil.
Nimo er 22 ára danskur sóknarmaður. Hann vakti verðskuldaða athygli þegar hann lék með Stjörnunni í Fótbolta.net mótinu fyrr á árinu er hann var staddur í heimsókn hjá Stjörnunni.

Hann á samtals fimm leiki fyrir aðallið AGF en hefur spilað iðulega með varaliði félagsins og staðið sig vel.

Nimo er ætlað að breikka leikmannahópinn og auka samkeppni meðal fremstu manna.

Leikmaðurinn er þegar kominn til landsins og búist er við því að hann fái leikheimild með Stjörnunni á allra næstu dögum.

Stjarnan varð bikarmeistari á síðasta tímabili og hafnaði þá í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar.

Komnir:
Björn Berg Bryde frá Grindavík
Elís Rafn Björnsson frá Fylki
Martin Rauschenberg frá Brommapojkarna

Farnir:
Óttar Bjarni Guðmundsson í ÍA

Samningslausir:
Terrance Dietrich
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.